Um Safnatorg.is

Safnatorg.is er íslenskur uppboðsvefur sem var skapaður af tveimur söfnurum sem vildu búa til betri vettvang fyrir fólk til að bjóða upp og kaupa safnaramuni. Okkur fannst vanta einn sameiginlegan stað þar sem safnarar gætu fundist — í stað þess að þurfa að leita í gegnum fjölda Facebook-síðna og hópa.

Á Safnatorgi er hægt að setja hluti á uppboð og bjóða í þá, alveg án kostnaðar. Þegar uppboði lýkur myndast sjálfkrafa spjallgluggi þar sem hæstbjóðandi og seljandi geta átt í samskiptum um hvernig best sé að ganga frá viðskiptunum.

Verkefnið er unnið í sjálfboðavinnu með það að markmiði að efla og bæta safnarasamfélagið á Íslandi.

Hvað má finna á Safnatorgi?

Mynt
Frímerki
Seðlar
Úr
Skartgripir
List

Af hverju Safnatorg?

  • Einn sameiginlegur vettvangur fyrir alla safnara
  • Alveg án kostnaðar — aðgangur opinn öllum
  • Sjálfvirkur spjallgluggi milli kaupanda og seljanda
  • Góð yfirsýn yfir öll uppboð í gangi

Við hjálpum þér

Við erum einnig tilbúin að hjálpa þér að selja hluti ef þú kýst að gera það ekki sjálf/ur. Auk þess kaupum við gull og silfur peninga. Hafðu samband hér fyrir neðan eða sendu okkur tölvupóst á safnatorg@gmail.com

Hafðu samband

Hefur þú spurningar, ábendingar eða vilt vita meira? Sendu okkur línu.

Villa kom upp. Vinsamlegast endurhlaððu síðuna. Endurhladda X